my life as a light bulb

Friday, April 04, 2008

Noticias del norte

Nú kemur færsla fyrir fjölskylduna á Spáni :o)

Ya por fin han llegado las fotos a la red para que las disfruteis todos.
Están en varios "posts" porque este blog se toma su tiempo para colgar fotos y hay que hacerlo poco a poco.... pero bueno, alli abajo las teneis. Van de Lo mas reciente y hacia atras, asi que si las quereis ver en orden, bajar hasta el post "myndaseria 1 frá Spáni" y subid :)

De la familia no hay mucho que contar, solo que aqui estamos disfrutando de la blancura de la nieve y el aire refrescante ;o)
De hecho, el soloecito y el calorcito de estas navidades nos han sentado fatal.... no ha pasado ni una semana en esta casa sin un resfriado desde que hemos vuelto. Y a Alexandra le dio hasta pulmonia, la pobrecita. Pero bueno, ahora mismo todo el mundo está mas o menos sanos y esperemos que así siga porque ya este mes le toca a Alexandra ir por primera vez a la guarderia. Que ya se acabo lo bueno y la mami tiene que volver al curro.
Hablando de curros, Jorge está triunfando en el suyo. Al volver tenia claro que el iba a llevar la mayoria del trabajo de un proyecto que ha cogido su empresa, uno de los proyectos mas grandes que tienen ahora. Asi que está muy contento..... aunque signifique subir a una montana helada 1 o 2 veces en semana (también le dejan unas motos de nieve muy guays :)

Bueno, os hechamos mucho de menos a todos y estamos ya viendo a ver de que modo nos vamos la siguiente vez para alla. Tenemos muchas ganas de veros, y especialmente a Adrian que habrá crecido un monton en estos 2 meses y medio..... A ver si alguien nos manda una foto del tio ;)

Un abrazo muy fuerte de todos los vikingos :o* :o*

Smá info af einbúunum bláu

Jæja, þá er familían komin heim og loks búið að sortera úr þessum hunduðum mynda og klína nokkrum þeirra hérna á netið :o)

Í fréttum af okkur er nú ekki mikið að segja, nema það að hér hafa geisað hver pestarfaraldurinn á fætur öðrum... það hafa ekki liðið meira en nokkrir dagar á milli þess sem einhver fjölskyldumeðlimurinn (þá reyndar yfirleitt þeir yngri) hafa lagst í rúmið með hita og hor í nös. Hún Alexandra litla er náttúrlega svo lítil og viðkvæm ennþá að kroppalingurinn hennar höndlaði ekki nógu vel allar þessar flensur og endaði greyið með lungnabólgu, en hún er nú orðin hress í bili.

Svo ef mannskapurinn hefur heilsu til þá fer Alexandra að byrja hjá dagmömmu í þessum mánuði, því jú....nú er ljúfa lífið búið og mamma verður að fara að vinna aftur. Þetta hafa verið mjög dýrmætir og yndislegir mánuðir sem ég hef haft þig hérna heima með mér Alexandra mín :o*

Af pabba er allt gott að frétta, Kárahnjúkar hafa eitthvert dularfullt aðdráttarafl fyrir karlinn. Því nú er hann byrjaður að vinna við eftirlit með stíflunni fyrir verkfræðistofu Austurlands og er hann mjög hress með það.

Nú kveð ég í bili og vona að ykkur heilsist öllum vel... muna að borða mikið af hvítlauk og appelsínusafa !!!

Wednesday, April 02, 2008

Mars


Nokkuð Lydeglad stúlkan :o)


Svo komu páskarnir og þá var egginu góða gerð góð skil....


Það er svo hressandi að leika úti :)


Út á róló


Flott í húsbóndastólnum :o)


Gobbedí gobb... jíhaaaa


Fjóla frænka kom mér upp á bragðið með mjólkurkex.... nammi namm


Gaman saman


Á sunnudagsmorgni... lalala


Alexandra með mömmu í góðum gír

Febrúar


Jæja, þá er maður greinilega kominn heim !


Chillað í stofunni með pabba


Já reynið bara að troða snuði upp í mig og sjáið hvað ég geri....


Alexöndru finnst einstaklega gaman að skoppa umm í rólunni sinni.


kjút


Alexandra að japla á banana í fyrsta skipti með fína fæðunetinu sínu :o)



Svo færði maður sig upp í "The real thing" :o)

Tuesday, March 18, 2008

Jólin '07/'08 + Janúar


Heimferðin byrjuð... góð mynd tekin á röltinu í Barcelona.


Flottir saman, Gabríel & Fabian dást að Adrian litla á spítalanum...


ADRIAN !!! kom í heiminn akkúrat til að sjá framan í frænda og frænku áður en fjölskyldan hélt aftur heim á leið.


Stolt amma


Öll frændsystkynin saman, Elenita, Gabríel, Ana, Carmen, Alexandra með Elo, & Marina.


Svona gáfu Javier & Lorena mér fínt leikteppi á "Reyes"


Morgunmaturinn á "Reyes"... þ.e. 6. janúar


Tvíréttað svona ef einhver skyldi nú vera virkilega svangur ;o)


Alexandra í áramótadressinu sínu... algjör gella í satínkjól :)


Flottir feðgar... það getur nú orðið kalt á Spáni líka sko !


Svo var Gabríel góður og aðstoðaði hana mömmu gömlu í að blása á öll þessi kerti á afmæliskökunni hennar.... úffff...hætta á stóreldi þarna :o)


Stúlkurnar sáu fyrir englasöng áður en gjöfunum var útbýtt þann 6. Jan :)


Gabríel var yfir sig hrifinn af gjöfinni frá "leynivin" sínum..... ójú, þetta var bíll :o)


Elo & Marore glæsipíur


Elena og Marina bara rólegar í öllum látunum


...Og þá var kátt í höllinni... mikið var um söng og gleði á aðfangadagskvöld


Gabríel hjá Langömmu og langafa á aðfangadagskvöld


Flottar mæðgur


German sló í gegn með gítarinn

Myndasería 3


Homa Alone ???


Tvær góðar saman


Alexöndru leið ekki illa í örmunum á Chris...


Elo & Alex að chilla


Gabriel smellir einum á frænda sinn, Adrian.


Alexandra að skoða frænda sinn aðeins


Elenita að syngja jólalög


Jesús & Gabi á úti-jólatónleikum Elenitu

Myndasería nr. 2


"Merendero" útisvæði þar sem hægt er að fara í Picknick :o)


Þær eru góðar þessar kartöflur :o)


Alexandra í Merendero


Jæja, þá er tími til að halda áfram....


Marina & Elenita á leið í Picknick


Vúúppííí, Pabbi og Javier sveifluðu manni bara af miklum mætti.

Friday, March 14, 2008

1. myndasería frá Spán


Elenita var dugleg að passa Alexöndru litlu, alveg eins og "Pro" :o)


Gabríel fékk að gefa dúfunum á torginu


Ana & Nieves góðar í eldhúsinu


Lorena komin 8 mánuði á leið


Það var mikið skrallað á rafmagbsfjórhjólinu sem Javier og Lorena gáfu Gabríel :o)


Fjölskyldan í göngutúr

Thursday, January 03, 2008

España, Olé Olé Olé :-)

Jaeja, thá erum vid búin ad vera i landi sólarinnar í rúman mánud og bara 3 dýrmaetar vikur eftir.... búhúhú...
Thetta er búid ad vera alveg aedislegur tími og er Gabríel búinn ad throskast mikid á thessum nokkrum vikum, og Alexandra er ad sjálfsogdu líka búin ad vaxa og blómstra mikid. Thví midur hef ég ekki fundid leid til ad koma myndum á netid hérna, en thaer koma thá í seinasta lagi thegar vid komum heim :-) Lofa, alveg 10 puttar upp til Guds.

Hann Gabríel er mjog svo hrifinn af stóru fraenku sinni henni Elenitu, sem er 10 ára gomul, thar sem hún er med einsdaemum tholinmód og nennir ad drosslast med hann út um allar trissur. Henni líst hins vegar mun betur á litlu systur og hossar henni á hondum sér eins og proffi :o)

Annars bidja allir hér voda vel ad heilsa heim á pólinn og er mikid spurt eftir heilsu og hamingju heimamanna (sérstaklega henni Diddu....)

Skrifa meira thegar ég finn út úr thessu myndamáli....

Gledileg Jól og farsaelt Nýtt ár !!!!!

Thursday, September 27, 2007

Fotos fotos fotos..... Myndir myndir myndir


Quien hay por alli ??
Hver er þar ??


"No te vayas !!!!"
"Neeeeeii, ekki fara !!"


Alexandra y mamá cocinando
Mamma og Alexandra flottar í eldhúsinu


El angel de la guarda
Stóri bróðir passar sko alveg upp á mann :o)


Alexandra con mamá
Alexandra og mamma


Alexandra acariciando a su hermano
Alexandra kann líka að vera góð við stóra bróðir


Hummmm.....Quien es este hombre...
Hummmm....hvaða karl er þetta...


Mira que fuerte soy
Selurinn Snorri :-)


Un banito con papá
Það er gott að fara í bað með pabba


Durmiendo en brazos de papa
Kósý að kúra svona hjá pabba


Una ninia pensativa
"A penny for your thoughts ?!"


El primer intento de Alexandra con un chupete.... todavia no lo consigue mantener :o/
Mín að mundast með snuddu í fyrsta skipti...ekki enn komin upp á lagið með hana


Gabi en su guarderia
Gabríel fyrir utan leikskólann sinn, Skógarland


Gabi Mccartney en Abby Road
Kommon, ef þið skiljið ekki spænsku útgáfuna þá eigið þið ekki skilið athugasemd :oP


Mira que grande soy :o)
Ég er Svooooooooona stór :oD


"conducción temeraria del tercer grado" :oP
Ekki langt í Motorcrossið hjá mínum


Aprendiendo a usar la escupidera
Aðeins að máta koppinn


Alexandra tomando su primer bano con mama
Fyrsta baðið hennar Alexöndru með mömmu


Aaaaah, un descansito en la guarde :o)
Gott að hvíla lúin bein í leikskólanum...


Gabi, bailando en la guarde....
Fred Astair Skógarlands að taka smá sveiflu ;o)

Sunday, September 09, 2007

Alexandra Rós Cortés

jæja þá gat mamma loks troðið einhverjum myndum af prinsessunni inn á bloggið.
Það hefur allt gengið mjög vel og er Alexandra orðin 3ja vikna og blómstrar vel. Gabríel heldur áfram að verajafn góður við litlu systur þó að klöppin og knúsin geta orðið frekar harkaleg á stundum... þessar fínhreyfingar ekki alveg komnar ennþá..hehe

En litla dúllan er bara voða góð og vær og leyfir mömmu og pabba að kúldrast aðeins með stóra bróður líka.

Annars er annað í fréttum að hann Gabríel Snær er byrjaður á leikskóla!! Minn bara að verða næstum því fullorðinn ;o)
Hann byrjaði á Skógarlandi hérna á Egilsttöðum í aðlögun þann 27. Ágúst síðastliðinn og er því búinn að vera 1 viku í aðlögun og svo aðra "full time". Og gengur það bara rosa vel...7,9,13.....Þar eru krakkar sem voru með honum hjá dagmömmunni svo þeir leika vel saman og þá er þetta ekki eins scary allt saman.

Jæja, hér eru loks myndir af prinsessunni, svona fyrir ykkur sem hafið ekki fengið eintak í gemmsann ykkar :o)



Alveg glæný, bara 15 mínútna gömul :o)


Fyrstu kynni Gabríels af litlu systur


Got að fá sér kríu eftir sopann :o)


Didda duglega að halda á Alexöndru


Nanna frænka að syngja fyrir mig :o)


Alexandra í góðum höndum hjá langönmmu


Gabríel bróðir búinn að slást í hópinn :o)


Alexandra og Stóra frænka, sem er bara rúmum 2 mánuðum eldri...


Og svo....SMÆL !!


Halló


Lítill geimfari á leið í skírn á Eskifirði


Skírnarkakan hennar Alexöndru sló í gegn

Sumarmyndir af Gabríel

Allt er þegar fernt er.....
Fjórða tilraun til að setja myndir á bloggið....hver veit nema ég setji myndir af gellunni inn líka ef þetta virkar núna :o)


Myndarlegur maður í skírninni hjá Fjólu Guðrún


Einn orðinn langþreyttur eftir skemmtilegt sumar og púnteraði heima í stofu


Svo kíktum við í dýragarð og þar voru fullt af svona flottum leikföngum


Flottur á "einni með öllu" um versló


Stóra rólan í Kjarnaskógi....júppííí


Didda skellti sér í bað með mér...ég var þó aðeins of mikill buslukall fyrir hana :o)


Jaaaá, svo 50 cm eru svona margar tommur....


Afi að kenna manni réttu handtökin


Menningarganga um miðbæ Akureyrar


Ert'ekkvað að reyn'að dissa mig mar !!


Göngutúr í Hallormsstaðarskóg


Svo fékk ég líka stóra stráka rúm í sumar...liggaliggalái...


Svona var maður fínn á 17. Júní :o)


Aðeins verið að laga hlutina heima við

Sunday, August 19, 2007

Prinsessan er mætt a svæðið !!

And a little princess was born......

Þann 17. Ágúst klukkan 06:15 kom litla prinsessan okkar í heiminn og var hún 13 merkur og 50 cm, bara algjör gella ;o)
Fæðingin gekk eins og í sögu og höfum við verið mjög góðar síðan við komum heim... litla dúllan var nú eitthvað óróleg á sjúkrahúsinu en það lagaðist mikið þegar við komum heim til Nönnu frænku í gærkvöldi og fengum að knúsa stóra bróðir og komast í smá líf... Gabríel tók vel á móti systur sinni og kyssti hana og knúsaði við heimkomuna og hefur lítið borið á afbrýðisemi, nema kannski helst þegar mamma leggur litlu systir á brjóst...minn skilur ekki alveg hvað er í gangi þá :o)
Þá á að leggja í hann austur yfir heiðar á morgun og verður litla fjölskyldan loks komin öll saman heim í kotið sitt seinni partinn á morgun...

Næsta föstudagi á að skíra litlu frænku á Eskifirði og höfum við ákveðið að nýta tækifærið þar sem flest öll ættmennin verða komin austur á land og halda nafnaveislu fyrir litlu sys á laugardeginum, það verður örugglega rosa gaman.

Jæja, mamma hendir inn myndum af okkur krúttunum einhvern tímann þegar við erum komin heim.

Saturday, August 11, 2007

Prinsessan lætur biða eftir ser

Jæja, þá er kominn 11. ágúst og litla systir er búin að láta bíða eftir sér í 4 daga, en hún hlýtur nú að fara að koma. Við fjölskyldan erum búin að vera hjá Nönnu frænku og Jón frænda að bíða eftir komu nýjasta fjölskyldumeðlimsins og er hún Didda frænka búin að vera rosalega dugleg að passa mig og kenna mér hinar ýmsu kúnstir ;o)

Ég er líka búinn að vera í fríi frá dagmömmunni minni í þrjár vikur núna og byrja svo í leikskólanum þann 20. ágúst svo þá verð ég með öllum stóru krökkunum á Skógarlandi :o) Það verður sko ekki leiðinlegt...

Svo stefna mamma og pabbi á langt frí hjá allri familíunni úti á spáni einhvern tímann yfir jólin og Janúar, því þá eignast ég nefnilega nýja/n frænku/frænda. Þá verða komin 3 stykki nýrra barna í skyldmannahópinn á bara nokkrum mánuðum, því hann Sigurjón frændi og Oddný frænka eignuðust svona rosalega sæta stelpu í júní. Það virðist vera von á kvennaveldi :oO

Annars eru bara góðar fréttir af okkur lille familien hérna í góða veðrinu fyrir norðan og höldum áfram að bíða...
Mamma lætur vita þegar litla systir verður komin í heiminn....

Thursday, April 26, 2007

Mars myndir

Gabríel búinn að uppgötva Pocoyo.... ást við fyrstu sýn

Lítill maður þreyttur eftir þeyting í Reykjavík


Houdini hvað !?


Loks fór snjórinn svo ég gat prufað þennan fína sandkassa sem er úti í garði :o)

Febrúarmyndir

Gaman að gramsa eftir góða búðarferð

Algjör 'english gentleman' í sloppnum sem mamma kom með heim frá Glasgow


Ég næ ef ég teygi mig píííínu meira


Maður gerði að sjálfsögðu bollunum góð skil á bolludeginum... minn maður kann sko góð skil á sínu, engar vatnsdeigsbollur takk, bara gerbollur ;o)

Svona var maður líka sætur kisi á öskudaginn :o) Mjá

Friday, April 20, 2007

Janúarmyndir


Tja.. ekki náði hún mamma nógu vel út í hornin hérna.....


Ég er farinn í ferðalag...


Mar verður bara eins og Mike Tyson þegar það er farið með mann út í gaddinn...


Aðeins verið að prufa jólagjöfina frá mömmu og pabba...


Close up

Jibbýý !!!!!!!!!!


Snemma beygist krókurinn..... orðinn fórnarlamb klippi(ó)hæfileika hennar mömmu..



Saturday, April 07, 2007

Desembermyndir

:o* Smack :o*

Myndarleg fjölskylda við jólatréið :o)


Júhúúúú..... sjáið flotta bílinn sem ég fékk í jólagjöf !


Maður verður flottur við stýrið á bílnum hans pabba eftir svona 16 ár :o/


Einhver einkahúmor þarna í gangi...

Jólafjölskyldan úti á palli.


Javi frændi var svo góður að fara með mig upp í turninn í jólalandi..

Tveir nývaknaðir


Lorena & Javi að passa mig í baði :o)

Nóvembermyndir

Prufukeyrsla á afmælishattinum mínu (I'm #1 today) :o)

Fyrsti alvörusnjór vetrarins...


MAður virkar nú ekki stór úti í hinni "villtu náttúru" ;o)

Ammlismyndir :o)

Fyrsta afmæliskakan mín !

Afi að glugga í eina af nýju bókunum mínum..


Já, hún Nanna frænka er alltaf að segja eitthvað merkilegt !


Ég var sko ekki lengi að ná tökunum á tryllitækinu hennar Diddu frænku...


Friday, November 24, 2006

Nokkrar Myndir



Aðeins að skoða húsið nokkrum dögum eftir að við fluttum austur... þetta þarf nú allt að vera í orden.....



Ég að fá mér smá súp fyrir svefninn hjá henni mömmu



Smá labbi mynd



Kominn niður á annað hnéið eins og alvöru Casanova...



Mar er bara farinn að taka töltið um íbúðina ;o)



Maður getur brosað blítt :o)

Monday, November 13, 2006

Ég er eins árs í dag... ég er eins árs í dag !!

Góðan daginn góðir netverjar !

Ég er loks kominn í fullorðinna tölu og farinn að telja aldur minn í árum en ekki vikum eða mánuðum....
Já, ég hélt upp á þennan stóratburð um helgina með pompi og prakt. Þó svo að það hafi skollið á óveður sem veðurteppti suma og ég hafi rokið upp í 40 stiga hita þá tókst þetta nú ágætlega. Nanna, Jón & Didda frænka komu keyrandi að norðan og tóku áhættuna á blindbyl til að geta verið með mér og get ég ekki lýst því hversu mikils virði það var mér :o* Luv ya lots and more :o*
Svo fékk ég fullt af fínu dóti og nýja tönn í ammælisgjöf :oO Rosa gaman....

Annars er það helst að frétta af mér að ég er bara að verða rosa stór og er farinn að hlaupa um allar trissur. Höfuðhöggunum fer líka fækkandi, nú er það frekar undantekning heldur en reglan ef ég er með marblett eða kúlu á höfðinu.. hehe

Svo er ég líka byrjaður hjá dagmömmu, henni Dísu. Og deili ég henni með 3 öðrum hressum krökkum. Þeir eru allir á svipuðu reiki og ég, einn sem er mánuði yngri en ég, annar sem er 2 mánuðum yngri og svo ein gella sem er alveg 6 mánuðum eldri en ég.
Mér finnst rosa gaman að leika mér við þau allan liðlangan daginn, en svo er nú líka lúmskt gaman þegar mamma eða pabbi koma að sækja mig.... en ekki segja þeim það ;o)

Pabbi er á fullu að mæla punkta út um allar trissur og setja þá svo inn í tölvu... Og er hann bara nokkuð sáttur við sitt.
Mamma fékk vinnu á Flugleiðahóteli og er að rembast eins og rjúpan við staurinn að klára þessa 2 áfanga sem hún tók í haust..... Gaman að vera bjartsýnn ;o)

Svo virðist vera sem við verðum líka að selja íbúðina okkar í Kópavoginum, þar sem leigusalinn okkar hér fyrir Austan fékk tilboð í íbúðina sem við vorum að leigja 5 dögum eftir að við fluttum inn.
Familían var nú ekki á þeim skónum að fara að leita að annarri íbúð og hífa allt upp aftur, svo við gerðum bara tilboð í pleisið.....En þar sem við erum nú ekki Villanueva fjölskyldan þá getum við víst ekki haldið uppi 2 íbúðum.
Þannig að þó okkur þykji það alveg ótrúlega sárt þá virðumst við þurfa að kveðja gamla góða Álfhólsveginn í bili.
We shall meet again old friend ......

Jæja, nú kveðjum við í bili..
Hendi inn myndum bráðum.

Thursday, September 07, 2006

Smá update

Jæja, jæja..... Nú er svoooooooooo mikið búið að ske hjá okkur síðan síðasta færsla var færð inn, að maður veit bara varla á hverju maður á að byrja......
Stóra fréttin fyrir alla fjölskylduna er alla veganna að við erum að fara að lyfta upp búi og flytja austur á land !! Já, við erum nefnilega búin að ákveða að gerast sveitadurgar (no offence to the people of Egilsstaðir... :op ).
Pabbi fékk nefnilega LOKSINS atvinnutilboð, frá íslensku fyrirtæki, sem er að einhverju leyti skylt því sem hann lærði úti á Spáni. Og þar sem mamma var ekki búin að lofa sér í vinnu ennþá og ekki byrjuð í skólanum, ákváðu þau að hún myndi bara skrá sig í fjarnám og leita að einhverju sneddí þarna fyrir austan :o)

Annars er það að frétta af mér að ég er orðinn alveg obboslega Stór og duglegur :o) Ég er alveg að fara að labba sjálfur, því ég stóð upp í fyrsta skipti þegar við vorum í heimsókn hjá fjölskyldunni hans pabba í Júní. Og er ég búinn að vera að æfa mig stíft síðan þá. Fyrst gat ég bara staðið í nokkrar sekúndur í einu, með dauðahald á rúmbríkinni. En núna get ég gengið með mömmu eða pabba ef ég fæ lánaða putta....bara sona upp á jafnvægið sem er ekki alveg komið 100% :o)
Svo er ég líka kominn með 7 tennur ! Þannig að það fer að styttast í það að ég þurfi að fara að borða þennan óskapnað sem mamma kallar "heimilismat"....hehe....
Annars er bara það að frétta að ég vex og dafna alveg rosa vel, ég á að fara í tékk á miðvikudag og get þá sagt ykkur hversu stór og þungur ég er orðinn ;o)

Jæja, kveðjum í bili....
Mamma, pabbi & stóri strákurinn :o)

Monday, August 28, 2006

Finally.... it has happened to me...

Myndir, myndir, myndir.... Mamma gafst upp á að reyna að koma myndum hérna inn, svo þið getið farið á þessa síðu til að sjá mig ;o)

http://smg.photobucket.com/albums/v643/dagnyb/

Por fin hay fotos, haz click en el enlace arriba y entra en la carpeta "Gabriel"... alli encontrarais algunas fotos mias (Mejor verlas en "Slideshow").... Pronto meterá mama algunas noticias mias aqui :o)

Tuesday, April 25, 2006

Un Mes !

Bueno, bueno.... ya va quedando menos para que esta pequena familia se vaya para Espana !! :o)
En menos de 4 semanas vamos a estar en estas playas ibericas....jeje... La verdad es que tenemos ya un monton de ganas de veros a todos por alli, y para que conoczcais a nuestro Gabriel. Está de gracioso ultimamente :o) Ha descubierto que tiene una voz singularmente alta ;o) y se tira todo el dia practicando para ser un soprano.....

Ahora mismo estamos un poco tristes porque nos encontramos separados, Jorge está en Reykjavík arreglando nuestro nuevo piso, que acabamos de comprar. Y Gabi e yo estamos en casa de mi hermana en Akureyri.
Estamos de orgullosos de papá, porque está siendo un campeón ! Ha quitado todo lo que había en la cocina y el cuarto de bano y va a poner todas las losas y azulejos el solo. Esperamos que todo vaya bien para que podamos volver a casa cuanto antes.

En noticias de Gabi hay que ya ha ido a su chequeo de 5 meses y salio con 5 estrellas. Pesa ya 6.180 gr, y mide 64 cm. Sus reflejos y fuerzas están incluso más avanzados de lo normal (lo cual tiene a sus padres super orgullosos..jejeje..) Está más gracioso cada día, aprendiendo nuevos trucos y descubriendo un poco más del mundo que le rodea. Desafortunadamente no puedo conectar mi camara al ordenata aqui, asin que quedais sin fotos hasta que podamos volver a casa......

Hasta pronto !

Sunday, April 23, 2006

Ferskt Norðanloft

Halló Halló.

Já, ég og mamma skelltum okkur bara norður yfir heiðar. Því miður munu ekki koma inn neinar nýjar myndir fyrr en við komum til baka því mamma getur ekki tengt myndavélina við tölvuna hérna.
En svo er nú mál með vexti að loks kom að stóra deginum, við áttum að flytja :)
Við flytjum nú ekki langt, förum bara í íbúðina sem er fyrir ofan okkur.... Eeen þar sem íbúarnir þar koma niður í okkar íbúð (löng saga) þá þurftum við að svissa samtímis og gera alla vinnuna sem íbúðin þarfnaðist á sama tíma. Svo þessu var pússlað solliðis saman að við pökkuðum niður öllu okkar hafurtaski og ég og mamma flúðum stórborgina og sestum upp hjá Nönnu systur og fjölskyldu hennar.
Pabbi býr núna eins og á vertíð í einu herbergi í gömlu íbúðinni okkar á meðan nágrannar okkar (Þóra og Gilli) mála íbúðina og ferja dótið sitt niður. Svo byrjaði hann að brjóta og bramla þau herbergi sem losna uppi. Hann er nú þegar búinn að rífa allt út úr eldhúsinu og flísaleggja það svona voða fínt, svo er hann núna byrjaður að rífa út af baðherberginu. Okkur hlakkar voða mikið til að koma heim og sjá nýju fínu íbúðina okkar. Lofum að setja inn einhverjar flottar myndir af Akureyrarferðinni og íbúðinni.

Annars er það að frétta af mér að ég fór í 5 mánaða skoðunina mína daginn áður en flogið var norður og kom ég bara nokkuð vel út :o) Ég mætti reyndar vera aðeins þyngri sagði hjúkkan, en ekkert til að hafa áhyggjur af. Ég er því núna heil 6.180 gr og flottir 64 cm.
Svo er ég búinn að vera að uppgötva raddböndin mín í ferðinni hérna fyrir norðan. Og hefur það komið í ljós að ég næ bara helvíti hátt upp... Step aside Garðar Þór Cortés ;o)
Nú er það því mitt uppáhalds tómstundagaman að reyna að skríkja eins hátt og ég mögulega get... og ef ég fæ athygli út á þetta stunt mitt skín alveg í gómana í algjöru prakkaraglotti :o)
Svo er hún Didda stóra frænka alveg rosalega dugleg að passa mig og leika við mig öllum stundum og er oft rosa gaman hjá okkur.

Jæja, nú er kominn tími á mig að fara að lulla út í vagni.
Meiri fregnir koma síðar.

Sunday, April 02, 2006

Jæja það hlaut að koma að því !

Hún Rósa litla klukkaði mig......So here goes:

4 vinnur sem ég hef unnið um ævina:
- Öll möguleg svæði í Hagkaupum Akureyri
- Hjálparhella í eldhúsi á suðurströnd Spánar
- Barþjónn
- Gestamóttaka

4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
- Brewsters millions
- Uncle Buck
- Tesis
- Dumb & Dumber

4 staðir sem ég hef búið á....(Fyrir utan good'ol Akureyri):
- Sevilla
- Manchester
- Malaga
- Kópavogur

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Portúgal
- Holland
- Danmörk
- Noregur

4 síður sem ég skoða daglega:
- Að sjálfsögðu er það mbl.is nr. 1,2 og 3
- Hin ýmsu blogg (You know who you are.....)
- Barnaland.is .... troðfullt af hinum ýmsa fróðleik, orðin forfallinn notandi thanks to Nanna :oP
- ElPais.es, bara svona til að fá smá aukaskammt af fréttum (hið spænska mbl)

Fernt matarkyns sem ég held upp á..... Jeminn hér er sko erfitt að gera upp á milli...:
- Allt sem er grillað
- Lasagne
- Sunnudagssteikin
- Kjötkássan hennar ömmu :o)...uhhhhmmmmmm...

4 staðir sem ég vildi helst vera á núna:
- Sanlúcar de Barrameda með tengdafólkinu
- Akureyri, hjá Nönnu og Diddu
- Jamaica
- Í fjöllum Nepal

4 bloggarar sem ég klukka:
- Nanna systir... svona taktu þér smá pásu frá lærdómnum ;o)
- Ester pæja
- Kerlan á Vífilgötu
- Jorge karlinn (þetta er ágæt íslenskuæfing :o)

4 sjónvarpsþættir sem ég fíla:
- Rome (...þeir einu sem ég man alltaf eftir að horfa á)
- Lost
- Desperate housewives
- The sketch show... gaman að sjá góðan breskan húmor endrum og eins.

Saturday, March 18, 2006

Photos, photos, photos........

Jæja, Gabríel Snær er á góðri leið með að fá ólympíugullið í baksundi.... bara sirka 18 ára æfing í það ;o)
En snúllinn okkar er senst kominn í ungbarnasund. Honum finnst alls ekki leiðinlegt að busla í vatninu með hinum krökkunum á meðan allt fullorðna fólkið syngur hástöfum um hjólin á strætó :o) Hann fer 1 sinni í viku til hennar Ágústu á Grensás í um hálftíma í senn og er hún alveg frábær !
Annars er allt rólegt, bara verið að undirbúa flutningana í næsta mánuði (þó að ég og mamma verðum voða sniðug og forðum okkur til Akureyrar á meðan mesta stuðið verður..hehe)
Og svo eru nokkrar myndir hér að venju:

Leiktími inni í stofu:
In your Face :o)

Þessi hringur er voða skemmtilegur, svo heyrist svo þægilegt hljóð í honum þegar ég hristi hann :o)

Í Sundi:

Pabbi og ég að spóka okkur á bakkanum áður en við styngum okkur til sunds...


Busli, busli, busl.....

Ég og mamma aðeins að dútla okkur


Skötuhjúin komin í heita pottinn... niiice..


Afi Biggi að halda á mér um seinustu helgi :o)


Ég er bara hissa á henni ömmu Sibbu !

Furðulegar Svefnstellingar:

Ég tók eina nóttina og klessssti nefinu svona algjörlega upp við rúmið mitt, og svona svaf ég... það var alveg sama hvað mamma gerði, ég fór bara aftur til baka :o)

Hér var ég búinn að uppgötva þægilegri leið til að hafa kæru bókina mína sem næst mér :o) N.B. að ég gerði þetta alveg sjálfur, mamma setti mig inn í rúm og kom svo að mér svona.. steinsofandi...

Ætli ég verði nærsýnn ??? :o)

Saturday, March 11, 2006

Þá Var Kátt í Höllinni

Sælt veri fólkið... hérna er nú bara stutt innslag, aðallega til að skella inn örfáum myndum af undanförnum dögum. Það er nú bara búið að vera rólegt á bænum undanfarið, nema hvað að ég, Gabríel Snær, er orðinn aðal skemmtikrafturinn í húsinu. Ég lærði nefnilega að hlæja svona skemmtilega um daginn... alveg eins og fullorðna fólkið :o) og eru nú allir að reyna sem best þeir geta til að koma mér til að skella upp úr (með misgóðum árangri þó ;o). Núna eru Jón og Didda frænka í bænum oooog afi og Sibba komu líka frá Egilsstöðum yfir helgina. Didda frænka var í heimsókn hjá mömmu í dag og var rosa dugleg að passa mig, hélt á mér og alles !
Svo ætla Biggi afi og amma Sibba að kíkja í heimsókn á morgun og ætla mamma og pabbi að elda eitthvað gott handa þeim.
Jæja hérna eru nokkrar myndir að skilnaði :o)
Mamma & Gabríel nývöknuð

10 mínútum seinna :o)